Kubbar – Multi

7.290 kr.

6 stykki á lager

6 stykki á lager

Svampkubbarnir frá danska merkinu That´s Mine eru frábærir sem fyrstu kubbarnir fyrir krílin. Kubbarnir koma 52 saman í pakka, þeir eru mjúkir og litirnir dásamlegir. Tilvalið að taka kubbana með í sturtuna/baðið. Það besta við þá er samt sennilega hversu hljóðlátir þeir eru, en við vitum jú flest að það skemmtilegasta við að byggja turn úr kubbum er að fella hann niður.

Kubbarnir eru ætlaðir 2 ára og eldri en gott að miða við að barnið sé hætt að setja dót í munninn, já eða taka þátt í leiknum og fylgjast þá með að þeir séu ekki að fara í litla munna.

Kubbarnir eru CE merktir og EN71 -1 og -2 samþykktir.

Vörunúmer: 0037481 Flokkur: Vörumerki: