Félagið heitir: Yrja verslun ehf. kt: 510820-1180 og er hér eftir nefnt „félag“ (orðið er fallbeygt eins og þarf).
Heimilisfang félagsins er: Akraland 13, 800 Selfoss og er hér eftir nefnt „Heimilisfang“ (orðið er fallbeygt eins og þarf).
Netfang félagsins er: yrja@yrjaverslun.is og er hér eftir nefnt „Tölvupóstfang“ (orðið er fallbeygt eins og þarf).

Persónuupplýsingar sem unnið er með þegar þú hefur samskipti við „félagið Þegar þú átt í tölvupóstsamskiptum við viðskiptamannaþjónustu okkar í tölvupósti; síma, á Netinu eða augliti til auglitis, söfnum við persónuupplýsingum; eins og nafni, póstfangi, símanúmeri, tölvupóstfangi og kjörstillingu á samskiptum og upplýsingum viðskipti þín við „félagið“, eins og raðnúmer vöru og dagsetningu viðskipta. Til að bæta þjónustu okkar og að teknu tilliti til laga, getum við jafnframt skráð og farið yfir samtöl við viðskiptavini og greint endurgjöf sem okkur er veitt af frjálsum vilja í könnunum. Fulltrúar sem þjónusta viðskiptamenn okkar geta eftir atvikum og með leyfi þínu skráð sig á þinn reikning hjá „félaginu“ í því skyni að bæta verkferla, leita lausna og leysa úr vanda sem upp getur komið. Tilgangur og lagalegar forsendur: Söfnun upplýsinga er ætlað að styðja viðskiptavini, auka skilvirkni vörukaupa og fylgjast með gæðum viðskiptamannastuðnings og virkni þjónustunnar sem við veitum. Lögmætar forsendur fyrir því að vinna úr þessum upplýsingum eru tryggðar, þar eð hagsmunir „félagsins“ felast í því að veita vandaðan stuðning með vörum og þjónustu. Samþykki þitt, sem þú getur dregið til baka, gefur lögmætar forsendur sem leyfa skráningu okkur á reikning þinn hjá „félaginu“ og eiga að tryggja skilvirkni vinnu okkar í þína þágu.

Flokkar viðtakenda persónuupplýsinga Önnur upplýsingagjöf: Við getum veitt öðrum persónuupplýsingar um þig: a) ef við höfum samþykki þitt, b) til að þjóna lagaskyldu, dómsúrskurði eða öðrum lagalegum skuldbindingum, c) til að framfylgja skilmálum, skilyrðum og stefnu okkar, d) til að fylgja tiltækum lagaúrræðum eða verja lagalegar kröfur. Við getum einnig flutt persónuupplýsingar þínar til hlutdeildarfélags, dótturfélags eða þriðja aðila þegar gerðar eru skipulagsbreytingar. Þetta á við um: samruna, sölu „félagsins“, stofnun „félagsins“ um sameiginlegt verkefni, sértækt verkefni eða annars konar tilfærslur á eigum eða birgðum „félagsins“, að hluta eða í heild, án takmarkana. Slík starfseining fær þá einungis heimild til að vinna úr þeim persónuupplýsingum þínum sem tilgreindar eru í stefnu okkar varðandi friðhelgi einkalífsins. Þessar breytingar þarf ekki að tilkynna þér sérstaklega, svo lengi sem farið er að lögum. Vafrakökur og svipuð tækni Vefsetur: Með hjálp þriðju aðila, söfnum við ákveðnum upplýsingum þegar þú heimsækir vefsetur okkar. Með þessu viljum við greina hvernig þú og aðrir gestir ferðast um vefsetur „félagsins“. Við skoðum tölfræði um notkun setursins og svarhlutfall. Innan þessara upplýsinga teljast IP-vistfang (e. IP address), landfræðileg staðsetning búnaðar þíns, tegund vefvafra og tungumál sem þú notar þar, dagsetning og stund heimsóknar, hvaða síður þú skoðar innan þess og á hvaða síðuþætti (t.d. tengla) þú slærð. Við gætum notað vafrakökur, myndeindartög (e. pixel tags), gengsæjar GIF-myndir eða svipuð tól á vefsetri eða í tölvupóstum okkar til að safna saman og greina slíkar upplýsingar. Við notum þessar upplýsingar til að auðvelda aðgengi og til að mæla skilvirkni auglýsinga. Einnig til að greina og lagfæra vanda í von um að bæta upplifun vefseturgesta. Samstarfsaðilar okkar geta notað myndeindartög eða aðra svipaða tækni til að safna upplýsingum um heimsóknir þínar á vefsetrið og þær upplýsingar má síðan nota til að senda þér markvissar auglýsingar. Nánari upplýsingar um þessa starfsvenju og til að skrá sig úr slíkri samantekt eða notkun á upplýsingum af hálfu þriðju aðila, vinsamlegast sjáðu upplýsingar á www.networkadvertising.org. Viljir þú ekki að upplýsingum sé safnað með þessum tæknitólum, þarf aðeins einfalt ferli til að afþakka þá þjónustu. Sem íbúi í Evrópusambandslandi eða í annarri lögsögu þar sem farið er fram á leyfi þitt til að nota vafrakökur (e. cookies) á vefsetri okkar, færðu tækifæri til að stjórna kjörstillingu þinni á vefsetrinu. Eins getur þú valið þann kost að aftengja þessar vafrakökur. Á Íslandi gerist þetta þegar viðeigandi reglugerð Evrópusambandsins hefur verið færð inn í EES-samninginn og innleidd af Alþingi. Vefsetur „félagsins“ fyrir farsíma: Við söfnum einnig gögnum frá notendum vefseturs „félagsins“ fyrir farsíma. Tegundir greinanlegra upplýsingar eru: dagsetning, tímann þegar smáforritið fær aðgang að netþjónum okkar, valið tungumál, hvaða upplýsingar og skrár hafa verið sóttar í forritið, notendahegðun (t.d. hvaða efnisþættir eru notaðir og tíðni notkunar), stöðuupplýsingar tækis og búnaðar, tegund tækis, vélbúnaðar- og stýrikerfisupplýsingar og upplýsingar sem varða virkni smáforritsins. „Félagið“ notar þessi gögn einnig til að auka nákvæmni, gæði og virkni forrita fyrir farsíma og til að þróa og markaðssetja vörur og efnisþætti sem þjóna þér og öðrum notendum. Hagsmunir okkar, á lagalegum grunni, felast í að skilja hvernig viðskiptavinir okkar eiga gagnkvæm samskipti við vefsetur okkar. Við förum að lögum þegar við vinnum úr greinanlegum upplýsingum, í þeim tilgangi að bæta upplifun notenda og virkni efnis, snjallforrita og vefseturs okkar. Hér eru dæmi um þriðju þjónustuaðila sem við notumst við nú þegar og veita greiningu og svipaða þjónustu: Greiningaþjónusta: Google: Við notum Google Analytics til að fylgjast með tölfræði vefsíðunnar og öðrum lýðfræðilegum upplýsingum og upplýsingum um áhugamál og hegðun á vefsetrum. Við notum einnig Google Search Console-stjórnborðið til að hjálpa okkur að skilja hvernig gestir finna vefsetur okkar og skoðum hvernig bæta má leitarvélabestun (SEO) okkar. Fáðu nánari upplýsingar um greiningarupplýsingar, hvernig stýra skal notkun upplýsinga þinna og hvernig á að komast hjá því að Google Analytics noti gögn þín. Samfélagsmiðlar: Þriðji aðili, t.d. þjónustuaðilar samfélagsmiðla, sem bjóða gagnvirkar íbætur (e. plug-ins) eða leiðir (t.d. til að heimila þér að tengjast Facebook eða Twitter í því skyni að finna vini í tengslahópinn eða til að „læka“ síðu), um vefsetur eða smáforrit fyrir farsíma geta notað vafrakökur eða aðrar aðferðir (t.d. vefvita (e. web beacons)) til að safna upplýsingum um notkun þína á vefsetrum eða smáforritum. Þriðji aðili styðst við stefnu sína varðandi friðhelgi einkalífsins. En fer að þeim reglum sem gilda. Við leggjum til að þú skoðir þá stefnu ítarlega. Slíkir aðilar geta notað þessar vafrakökur eða aðrar ferilskoðunaraðferðir í eigin þágu með því að tengja upplýsingar um notkun þína á vefsetri okkar við þær persónuupplýsingar sem þeir kunna að ráða yfir og varða þig. Við getum einnig komist yfir greiningarupplýsingar frá samfélagsmiðlum sem hjálpa okkur að mæla skilvirkni efnisinntaks okkar og skoðað mátt auglýsinga á samfélagsmiðlum.

Börn

Við gerum þá kröfu að einstaklingar undir lögræðisaldri veiti ekki „félaginu“ persónuupplýsingar. Ef við komumst að raun um að við höfum safnað saman persónuupplýsingum frá barni undir 18 ára aldri, munum við grípa til viðeigandi ráðstafana og eyða þeim upplýsingum eins fljótt og auðið er.

Uppfærslur á stefnu varðandi friðhelgi einkalífsins Ef þörf krefur, getum við uppfært stefnu okkar varðandi friðhelgi einkalífsins, einkum þegar við bætum við nýjum vörum og smáforritum, eða þegar við bætum núverandi framboð okkar og um leið og tækni- og lagabreytingar verða. Þú getur séð hvenær þessi stefna var síðast endurskoðuð með því að líta til „Síðast uppfærð“ eða „Last updated“ skýringartextann efst á þessari síðu. Breytingar taka gildi þegar við setjum inn endurskoðaða stefnu okkar. Við munum tilkynna þér ef þessar breytingar eru efnislegar og ef þess er krafist, í gildandi lögum, að óskað sé eftir samþykki þínu. Þessi tilkynning verður send með tölvupósti eða með því að setja inn tilkynningu á þau vefsetur og þau smáforrit „félagsins“ sem tengjast stefnu okkar varðandi friðhelgi einkalífsins.

Varðveisla persónuupplýsinga Við munum geyma persónuupplýsingar þínar eins lengi og aðgangur þinn hjá vefsíðu „félagsins“ er talinn virkur. Einnig má leita undir „Réttur þinn“ eða „Your rights“ til að finna lýsingu á réttindum þínum. Gagnastýringar- og gagnaverndunarstarfsmaður Persónuupplýsingum sem „félagið“ safnar um þig er stjórnað af „félaginu“, sem hefur aðsetur að okkar „Heimilisfangi“. Gagnaverndunarstarfsmaður „félagsins“ hefur sama aðsetur, einnig má hafa samband við hann um „tölvupóstfang“. Réttur þinn Sért þú með búsetu í Evrópusambandinu (eða á EES-svæðinu þegar viðkomandi reglugerð ESB hefur einnig tekið gildi þar) hefur þú réttindi samkvæmt almennu persónuverndarreglugerðinni (GDPR) til að fá aðgang að og leiðrétta eða eyða persónuupplýsingum þínum, takmarka færanleika eða vinnslu gagna og komið í veg fyrir vinnslu persónuupplýsinga. Sért þú með búsetu utan Evrópusambandsins (eða eftir atvikum í EES, sbr. að ofan) gæti þó verið að þú hefðir þessi sömu réttindi samkvæmt innlendum lögum. Til að krefjast aðgangs að, leiðrétta, takmarka færanleika eða eyða persónuupplýsingum þínum eða hætta með reikning þinn hjá „félaginu“ geturðu haft samband við okkur á „tölvupóstfang“ okkar. Sért þú með búsetu í Evrópusambandinu (eða eftir atvikum í EES, sbr. að ofan) og óskar eftir að nýta rétt þinn til að takmarka vinnslu á eða réttindi þín til að mótmæla vinnslu á persónuupplýsingum þínum geturðu haft samband við gagnaverndunarstarfsmann okkar á lögheimili okkar eða með tölvupósti í „tölvupóstfang“ okkar. Sért þú með búsetu utan Evrópusambandsins (eða eftir atvikum í EES, sbr. að ofan) en telur þig hafa réttindi til að takmarka vinnslu á eða réttindi til að mótmæla vinnslu persónuupplýsinga þinna samkvæmt lögum í heimalandi þínu, skaltu vinsamlegast hafa samband við gagnaverndunarstarfsmanninn á „tölvupóstfang“ okkar.