Silver Cross Dream ungbarnabílstóll

42.990 kr.

Hjá okkur færð þú 15% afslátt af öllum bílstólum óháð tryggingafélagi með kóðanum BILSTOLL.

Uppselt

This product is currently sold out.

No worries! Enter your email, and we'll let you know as soon as it's back in stock.

Vörunúmer: 0009967 Flokkur: Merkimiði:

Einfaldleiki og þægindi

Stóllinn er einn allra þróaðasti ungbarnabílstóllinn á markaðnum með ungbarnainnleggi og höfuðstuðningi sem kemur sér mjög vel fyrstu mánuði barnsins. Bílstólinn má festa annað hvort með bílbelti eða með sérhannaðari Dream ISOFIX undirstöðu. Að sjálfsögðu er 5-punkta belti í stólnum þar sem öryggi er alltaf haft í fyrirrúmi við hönnun á Silver Cross vörum. Bæði er hægt að stilla belti og höfuðstuðning á meðan barnið er í stólnum.

  • Notkun frá fæðingu upp í 13 kg (ca. 9-12 mánaða)
  • Hægt að nota bæði með ISOFIX og bílbelti einu sér
  • 5 stöðu handfang með góðu og þæginlegu gripi
  • Skyggni með sólarvörn
  • 4 laga hliðarvörn
  • Ungbarnainnlegg sem hækkar sætið og eykur þægindi fyrstu mánuðina, það er síðan fjarlægt til að dýpka stólinn svo barnið geti notað hann lengur
  • 2 ára ábyrgð (3 ef þú skráir hann í appið)