Voksi Ungbarnaskór

Vörunúmer: 11037717 Flokkur:

Hlýir og þægilegir Voksi® ungbarnaskór með 100% ullarfyllingu. Vindheldir og vatnsfráhrindandi og fullkomnir til að halda litlum fótum hlýjum í kerru, burðarpoka eða bílstól.

5.990 kr.

Skráning staðfest

Þú hefur skráð þig í verðvöktun fyrir þessa vöru. við munum láta þig vita með tölvupósti ef verðið lækkar.

Verðvöktun

Fáðu tölvuóst ef þessi vara fer á tilboð eða lækkar í verði.

Staðfesta vöktun

Verslaðu fyrir 5.000 kr eða meira og fáðu ókeypis afhendingu í póstbox eða á pósthús um allt land!

Voksi® ungbarnaskórnir eru hlýir og þægilegir skór fyrir börn sem eru ekki farin að ganga. Þeir koma í tveimur stærðum og henta einstaklega vel í kerru, burðarpoka og bílstól þar sem mikilvægt er að halda litlum fótum hlýjum og vel vörðum.

Skórnir eru framleiddir úr vönduðum og gæðavottuðum efnum. Fyllingin er úr 100% ull sem er náttúrulega hitastillandi og hjálpar til við að viðhalda þægilegu hitastigi á sama tíma og hún leiðir raka frá fótunum. Ytra byrðið er vindhelt og vatnsfráhrindandi með 8000 mm vatnssúlu og BIONIC FINISH® ECO meðhöndlun.

Skórnir sitja vel á fætinum og auðvelt er að klæða barnið í þá með frönskum rennilás. Öll efni eru OEKO TEX® Standard 100, class 1 vottuð og því prófuð með tilliti til skaðlegra efna. Hægt er að samræma litina við Voksi® kerrupoka og vagnhanska.

Eiginleikar

  • Hlýir ungbarnaskór með ullarfyllingu
  • Henta börnum sem eru ekki farin að ganga
  • Auðvelt að fara í og úr með frönskum rennilás
  • Öndunargott efni með himnu
  • Vindhelt og vatnsfráhrindandi
  • Vatnssúla 8000 mm
  • Henta vel fyrir haust og vetur

Efni

  • Ytra efni: 100% nælon
  • Innra efni: 100% pólýester
  • Fylling: 100% ull

Vottanir

  • OEKO TEX® Standard 100, class 1
  • BIONIC FINISH® ECO
  • Responsible Wool Standard, RWS

Þvottaleiðbeiningar

Þvoið á 40°C ullarþvotti með ullarþvottaefni. Má ekki bleikja. Þurrkið í þurrkara á lágum hita með þurrkkúlum þar til skórnir eru alveg þurrir.

Litur

,

,

Stærð

,

Vörumerki

Voksi er norskt vörumerki sem hefur sérhæft sig í vönduðum ungbarnapokum, dýnum og fylgihlutum síðan 1986. Vörurnar eru hannaðar með hámarksþægindi og öryggi í huga, úr náttúrulegum og vönduðum efnum sem tryggja börnum hlýju og vellíðan allt árið um kring. Með tímalausa hönnun, hagnýta eiginleika og sjálfbærni í fyrirrúmi er Voksi traustur kostur fyrir foreldra sem vilja það besta fyrir börnin sín.

Allar pantanir eru sendar með Íslandspósti. Ókeypis afhending í póstbox og á pósthús um allt land ef verslað er fyrir 5.000 kr. eða meira. Pantanir sem berast fyrir kl. 13:00 skila sér í flestum tilfellum til viðskiptavina innan við sólarhring. Umfangsmeiri vörur eins og t.d. bílstólar geta tekið lengri tíma í afgreiðslu.
Það er hægt að velja að sækja pantanir í verslun. Bílstóla og kerrur er hægt að velja að sækja á lager okkar í Hafnarfirði.
Ekki hika við að hafa samband við okkur fyrir frekari upplýsingar.