Hlýir og þægilegir Voksi® vagnhanskar með dúnfyllingu og mjúku flísfóðri. Hanskarnir festast auðveldlega á stýri barnavagnsins eða kerrunnar og halda höndunum hlýjum í köldu veðri. Vindheldir og vatnsfráhrindandi með 8000 mm vatnssúlu.
9.990 kr.
Þú hefur skráð þig í verðvöktun fyrir þessa vöru. við munum láta þig vita með tölvupósti ef verðið lækkar.
Verslaðu fyrir 5.000 kr eða meira og fáðu ókeypis afhendingu í póstbox eða á pósthús um allt land!
Voksi® vagnhanskarnir eru hlýir og þægilegir hanskar sem festast beint á stýri barnavagnsins eða kerrunnar. Þeir koma í einni stærð og henta því flestum höndum. Þegar hendurnar eru teknar úr vagnhönskunum sitja þeir áfram á stýrinu og eru því alltaf tilbúnir þegar á þarf að halda.
Vagnhanskarnir eru framleiddir úr vönduðum og gæðavottuðum efnum. Fyllingin er úr hágæða dúni og fjöðrum sem veita framúrskarandi einangrun gegn kulda. Loftið sem safnast á milli dúnfjaðranna hjálpar til við að halda hita og gerir vagnhanskana sérstaklega hlýja á köldum vetrardögum.
Að innan eru vagnhanskarnir fóðraðir með mjúku flísefni sem gerir þá hlýja og þægilega viðkomu. Ytra byrðið er vindhelt og vatnsfráhrindandi með 8000 mm vatnssúlu og BIONIC FINISH® ECO meðhöndlun. Öll efni eru OEKO TEX® Standard 100, class 1 vottuð og því prófuð með tilliti til skaðlegra efna.
Vagnhanskarnir eru hannaðir til að passa á flestar gerðir barnavagna og kerra. Þeir festast auðveldlega utan um stýrið með frönskum rennilás. Stillanleg snúra á hliðinni gerir kleift að herða vagnhanskana að úlnliðnum og hjálpar þannig til við að halda kuldanum úti.
Eiginleikar
- Hlýir vagnhanskar með dúnfyllingu
- Festast beint á stýri barnavagnsins eða kerrunnar
- Ein stærð sem hentar flestum höndum
- Mjúkt flísfóður að innan
- Öndunargott efni með himnu
- Vindhelt og vatnsfráhrindandi
- Vatnssúla 8000 mm
- Henta sérstaklega vel fyrir haust og vetur
Efni
- Ytra efni: 100% nælon
- Innra efni: 100% pólýester
- Fylling: dúnn og fjaðrir, yfir 70% dúnn og 30% fjaðrir
Vottanir
- OEKO TEX® Standard 100, class 1
- BIONIC FINISH® ECO
- Responsible Down Standard, RDS
Þvottaleiðbeiningar
Þvoið á 40°C fínþvotti með þvottaefni án ensíma. Má ekki bleikja. Þurrkið í þurrkara á meðalhita með þurrkkúlum þar til vagnhanskarnir eru alveg þurrir.
Allar pantanir eru sendar með Íslandspósti. Ókeypis afhending í póstbox og á pósthús um allt land ef verslað er fyrir 5.000 kr. eða meira. Pantanir sem berast fyrir kl. 13:00 skila sér í flestum tilfellum til viðskiptavina innan við sólarhring. Umfangsmeiri vörur eins og t.d. bílstólar geta tekið lengri tíma í afgreiðslu.
Það er hægt að velja að sækja pantanir í verslun. Bílstóla og kerrur er hægt að velja að sækja á lager okkar í Hafnarfirði.
Ekki hika við að hafa samband við okkur fyrir frekari upplýsingar.


