Voksi Huddle – Burðarpoki

Vörunúmer: 0124232 Flokkur:

Voksi® Huddle er burðarpoki sem þú ferð í eins og jakka og vex með barninu frá fæðingu og upp í um 15 kg. Rennilás að framan gerir auðvelt að taka barnið úr án þess að vekja það, og engar lausar ólar þarf að eiga við.

Verð áður: 28.990 kr..Núverandi verð er: 26.090 kr..

Aukahlutir sem passa
Jólagjafir: frí skil og skipti til og með 15. janúar.
Skráning staðfest

Þú hefur skráð þig í verðvöktun fyrir þessa vöru. við munum láta þig vita með tölvupósti ef verðið lækkar.

Verðvöktun

Fáðu tölvuóst ef þessi vara fer á tilboð eða lækkar í verði.

Staðfesta vöktun

Verslaðu fyrir 10.000 kr eða meira og fáðu ókeypis afhendingu í póstbox eða á pósthús um allt land!

Voksi® Huddle er hannaður fyrir daglegan burð allt frá fyrstu vikunum og fram á smábarnsár (15 kg). Með vinnuvistfræðilegu sæti og sveigjanlegum hálsstuðningi veitir hann nýburðum góðan stuðning, og þegar barnið stækkar má bera það bæði með andlitið að þér og fram á við. Burður með andlitið að þér er þó alltaf besta meginreglan.

Ferð í hann eins og jakka

Þú ferð í Huddle eins og jakka og lætur rennilásinn mynda sætið fyrir barnið. Engar flóknar ólar eða spennur. Til að taka barnið úr opnarðu rennilásinn að framan og lyftir því varlega upp, svo auðvelt er að leggja sofandi barn beint í vagninn eða rúmið. Allar stillingar eru gerðar að framan, svo þú þarft ekki að teygja þig aftur fyrir bak.

Mjúk og þægileg efni

Ytra byrðið er úr blöndu af bómull og Tencel™ sem er mjúkt og andar vel. Að innan er loftræst 3D net sem heldur þægilegum hita á öllum árstíðum. Þér litir eins og svartur geta upplitast lítillega með tímanum, sérstaklega eftir þvott eða sólarljós. Það er ekki galli heldur eðlilegur eiginleiki náttúrulegra efna.

Bakvænn fyrir þig og barnið

Huddle var þróaður í samstarfi við sérfræðinga í burði, sjúkraþjálfara og heilbrigðisstarfsfólk. Hann styður við náttúrulega lögun hryggjar barnsins og M stöðu mjaðma, og dreifir þyngdinni jafnt svo minna álag verður á axlir og mjóbak. Fastur bakhluti heldur ólunum alltaf á réttum stað, og burðarpokinn hefur hlotið AGR vottun sem bakvæn vara.

Eiginleikar

  • Frá fæðingu og upp í um 15 kg
  • Farið í eins og jakka, með rennilás að framan
  • Auðvelt að taka sofandi barn úr
  • Allar stillingar gerðar að framan
  • Vinnuvistfræðilegt sæti sem styður M stöðu
  • Stillanlegur hálsstuðningur
  • Burður með andlit inn eða fram
  • Bómull og Tencel™ að utan, 3D net að innan
  • OEKO TEX® Standard 100, class 1
  • AGR vottun
  • Red Dot Design Concept Award 2025
  • Prófaður samkvæmt CEN/TR 16512:2015

Gott að vita

Hálsstuðningurinn á aldrei að ná hærra en upp að miðju eyra barnsins. Hann styður við hálsinn en er ekki höfuðpúði.

Umhirða

Þvoið á 30°C á viðkvæmu prógrammi með mildu þvottaefni án bleikiefna. Leggið flatt til þerris og setjið ekki í þurrkara.

Litur

,

,

,

Vörumerki

Voksi er norskt vörumerki sem hefur sérhæft sig í vönduðum ungbarnapokum, dýnum og fylgihlutum síðan 1986. Vörurnar eru hannaðar með hámarksþægindi og öryggi í huga, úr náttúrulegum og vönduðum efnum sem tryggja börnum hlýju og vellíðan allt árið um kring. Með tímalausa hönnun, hagnýta eiginleika og sjálfbærni í fyrirrúmi er Voksi traustur kostur fyrir foreldra sem vilja það besta fyrir börnin sín.

Allar pantanir eru sendar með Íslandspósti. Ókeypis afhending í póstbox og á pósthús um allt land ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira. Pantanir sem berast fyrir kl. 13:00 skila sér í flestum tilfellum til viðskiptavina innan við sólarhring. Umfangsmeiri vörur eins og t.d. bílstólar geta tekið lengri tíma í afgreiðslu.
Það er hægt að velja að sækja pantanir í verslun. Bílstóla og kerrur er hægt að velja að sækja á lager okkar í Hafnarfirði.
Sendu okkur línu í netspjallinu ef þig vantar frekari upplýsingar.