Voksi Adventure North – Kerrupoki

Vörunúmer: 0124242 Flokkur:

Voksi® Adventure North er hlýjasti kerrupoki Voksi, gerður fyrir fjölskyldur sem eru mikið úti. Fylltur með dún (90/10), vindheldur og með opum fyrir hendur. Hentar upp í 3 ára aldur.

Verð áður: 39.990 kr..Núverandi verð er: 35.990 kr..

Aukahlutir sem passa
Jólagjafir: frí skil og skipti til og með 15. janúar.
Skráning staðfest

Þú hefur skráð þig í verðvöktun fyrir þessa vöru. við munum láta þig vita með tölvupósti ef verðið lækkar.

Verðvöktun

Fáðu tölvuóst ef þessi vara fer á tilboð eða lækkar í verði.

Staðfesta vöktun

Verslaðu fyrir 10.000 kr eða meira og fáðu ókeypis afhendingu í póstbox eða á pósthús um allt land!

Voksi® Adventure North hentar börnum upp í 3 ára aldur og fjölskyldum sem nýta hvert tækifæri til að vera úti saman. Efnin minna á þykka og mjúka dúnúlpu og leggjast auðveldlega að barninu. Fyllingin er hágæða dúnn (90/10) og hólfaskipting í saumum heldur kuldanum úti. Adventure North er hlýrri en Voksi Adventure.

Ytra byrðið er vindhelt með 3000 mm vatnsheldni og BIONIC FINISH® ECO. Í mikilli rigningu er mælt með regnhlíf yfir kerruna. Op fyrir hendurnar með rennilásum leyfa barninu að taka þátt í því sem gerist í kringum það án þess að kuldinn komist inn.

Op í baki passa fyrir allar gerðir belta, svo pokinn hentar í kerru, hjólavagn og sleða. Meðan barnið er lítið má herða snúruna neðst svo dúninn liggi að fótunum, og losa hann þegar barnið stækkar. Tvívirkur rennilás gerir auðvelt að athuga hvort barninu sé hlýtt á fótunum eða hleypa inn lofti. Pokinn fylgir með þjöppunarpoka, sem er hándhægt á ferðalögum.

Eiginleikar

  • Upp í 3 ára aldur
  • Dúnfylling (90/10) með hólfaskiptingu
  • Vindheldur, 3000 mm vatnsheldni, BIONIC FINISH® ECO
  • Op fyrir hendur með rennilásum
  • Passar í kerru, hjólavagn og sleða
  • Snúra neðst til að stytta pokann
  • Tvívirkur rennilás
  • Stillanleg snúra við höfuð
  • Þjöppunarpoki fylgir
  • OEKO TEX® Standard 100, class 1

Gott að vita

Hristið pokann fyrir notkun svo dúninn nái fullri einangrun, og geymið hann óþjappaðan. Á köldum dögum er gott að hafa einangrandi undirlag, til dæmis gæru, undir pokanum. Haldið góðu loftflæði við höfuð barnsins og látið börn alltaf sofa undir eftirliti.

Litur

,

,

Vörumerki

Voksi er norskt vörumerki sem hefur sérhæft sig í vönduðum ungbarnapokum, dýnum og fylgihlutum síðan 1986. Vörurnar eru hannaðar með hámarksþægindi og öryggi í huga, úr náttúrulegum og vönduðum efnum sem tryggja börnum hlýju og vellíðan allt árið um kring. Með tímalausa hönnun, hagnýta eiginleika og sjálfbærni í fyrirrúmi er Voksi traustur kostur fyrir foreldra sem vilja það besta fyrir börnin sín.

Allar pantanir eru sendar með Íslandspósti. Ókeypis afhending í póstbox og á pósthús um allt land ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira. Pantanir sem berast fyrir kl. 13:00 skila sér í flestum tilfellum til viðskiptavina innan við sólarhring. Umfangsmeiri vörur eins og t.d. bílstólar geta tekið lengri tíma í afgreiðslu.
Það er hægt að velja að sækja pantanir í verslun. Bílstóla og kerrur er hægt að velja að sækja á lager okkar í Hafnarfirði.
Sendu okkur línu í netspjallinu ef þig vantar frekari upplýsingar.