Stígvél – Blue Boat

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , Merkimiði:

Falleg og vönduð stígvél frá Pom Pom sem sameina tímalausa hönnun og þægindi fyrir litla ævintýramenn. Stígvélin eru framleidd úr náttúrulegu gúmmíi með fallegri mattri áferð og mjúkri, sveigjanlegri uppbyggingu sem hentar vel fyrir leik og útiveru í íslensku veðri.

Að innan eru þau með mjúku textílefni og með lausum innleggssóla sem eykur þægindi. Riffluð áferð á sóla tryggir gott grip á blautu og hálu undirlagi á meðan praktískur flipi aftan á stígvélinu auðveldar börnum að fara sjálf í og úr.

Fallegt munstrið sem kemur frá systur fyrirtækinu, Petit Piao setur svo punktinn yfir i-ið!

Innleggs mælingar:
19 – 12,6 cm
20 – 13,3 cm
21 – 14,0 cm
22 – 14,6 cm
23 – 15,3 cm
24 – 16,0 cm
25 – 16,7 cm
26 – 17,3 cm
27 – 18,0 cm
28 – 18,6 cm
29 – 19,2 cm
30 – 20,0 cm
31 – 20,6 cm
32 – 21,4 cm

5.290 kr.

Skráning staðfest

Þú hefur skráð þig í verðvöktun fyrir þessa vöru. við munum láta þig vita með tölvupósti ef verðið lækkar.

Verðvöktun

Fáðu tölvuóst ef þessi vara fer á tilboð eða lækkar í verði.

Staðfesta vöktun

Pantaðu strax í dag og fáðu ókeypis afhendingu í póstbox eða á pósthús um allt land!

Pom Pom er danskt vörumerki sem sérhæfir sig í skóm og fylgihlutum fyrir börn. Skórnir eru hannaðir með þægindi, gæði og stuðning í fyrirrúmi þannig að þeir henta bæði fyrstu skrefunum og daglegum leik. Með klassíska hönnun, mjúkum litum og vönduðum efnum býður Pom Pom upp á stílhreina og trausta skó sem börn geta gengið í með öryggi og vellíðan.

Allar pantanir eru sendar með Íslandspósti eða Dropp. Ókypis afhending í póstbox og á pósthús um allt land. Pantanir sem berast fyrir kl 13:00 eru í flestum tilfella að skila sér til viðskiptavina á innan við sólarhring. Umfangsmeiri vörur eins og t.d. bílstólar geta tekið lengri tíma í afgreiðslu.
Það er hægt að velja að sækja pantanir í verslun. Bílstóla og kerrur er hægt að velja að sækja á lager okkar í Hafnarfirði.
Ekki hika við að hafa samband við okkur fyrir frekari upplýsingar.