Þessi fallegi skiptikassi er úr mjúku teddy-efni og auðveldar þér bleyjuskiptin. Mjúkt efnið gefur kassanum hlýlegt og notalegt yfirbragð sem passar vel á skiptiborðið eða í barnaherbergið.
Kassinn hentar einstaklega vel undir bleyjur, krem, taubleyjur og annað sem gott er að hafa við höndina.
Kassinn er með eitt stórt hólf og færanlegum hólfaskiptingum sem festast auðveldlega með frönskum rennilás. Þannig er hægt að aðlaga innra rýmið eftir þörfum – hafa eitt stórt hólf eða skipta því í þrjú minni hólf.
Hagnýt handföng gera auðvelt að færa kassann á milli staða og þrír vasar, einn stór og tveir minni, veita aukið geymslupláss fyrir smáhluti.
Þegar kassinn er ekki í notkun er hægt að taka botninn úr og fella hann saman, þannig að hann tekur lítið pláss við geymslu.
Falleg og praktísk lausn sem hjálpar til við að halda öllu fyrir skiptitímann snyrtilegu og aðgengilegu.
4.990 kr.
Á lager
Þú hefur skráð þig í verðvöktun fyrir þessa vöru. við munum láta þig vita með tölvupósti ef verðið lækkar.
Verslaðu fyrir 5.000 kr eða meira og fáðu ókeypis afhendingu í póstbox eða á pósthús um allt land!
Allar pantanir eru sendar með Íslandspósti. Ókeypis afhending í póstbox og á pósthús um allt land ef verslað er fyrir 5.000 kr. eða meira. Pantanir sem berast fyrir kl. 13:00 skila sér í flestum tilfellum til viðskiptavina innan við sólarhring. Umfangsmeiri vörur eins og t.d. bílstólar geta tekið lengri tíma í afgreiðslu.
Það er hægt að velja að sækja pantanir í verslun. Bílstóla og kerrur er hægt að velja að sækja á lager okkar í Hafnarfirði.
Sendu okkur línu í netspjallinu ef þig vantar frekari upplýsingar.
