


Mjúkar og hlýjar lúffur frá En Fant sem henta einstaklega vel fyrir útiveru og leik í íslensku veðri.
Vettlingarnir eru vatns- og óhreinindafráhrindandi og með vatnsheldni upp á 8.000 mm, sem hjálpar til við að halda litlum höndum þurrum í rigningu og bleytu. Gott stroff hjálpar þeim að haldast vel á litlum höndum og styrking í lófa eykur endingu vettlinganna.
Vettlingarnir koma með praktískri plastklemmu svo auðvelt er að festa þá saman þegar þeir eru ekki í notkun og minni líkur á að þeir týnist.
Þeir eru með BIONIC FINISH® ECO húðun og eru GRS-vottaðir, framleiddir úr 21% endurunnu efni.
Stærðir:
2-4 ára
4-6 ára
6-8 ára
4.690 kr. Verð áður: 4.690 kr..3.750 kr.Núverandi verð er: 3.750 kr..
Þú hefur skráð þig í verðvöktun fyrir þessa vöru. við munum láta þig vita með tölvupósti ef verðið lækkar.
Verslaðu fyrir 10.000 kr eða meira og fáðu ókeypis afhendingu í póstbox eða á pósthús um allt land!
Allar pantanir eru sendar með Íslandspósti. Ókeypis afhending í póstbox og á pósthús um allt land ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira. Pantanir sem berast fyrir kl. 13:00 skila sér í flestum tilfellum til viðskiptavina innan við sólarhring. Umfangsmeiri vörur eins og t.d. bílstólar geta tekið lengri tíma í afgreiðslu.
Það er hægt að velja að sækja pantanir í verslun. Bílstóla og kerrur er hægt að velja að sækja á lager okkar í Hafnarfirði.
Sendu okkur línu í netspjallinu ef þig vantar frekari upplýsingar.
