THE NEW hannar fatnað fyrir börn með sterkan persónuleika, mikinn karakter og nóg af orku. Hönnunin er nútímaleg og vönduð, með áherslu á þægindi, hreyfingu og persónulegan stíl.
THE NEW var stofnað árið 2016 með það að markmiði að hvetja nýjar kynslóðir til að mæta heiminum af sjálfstrausti, forvitni og hugrekki. Því föt eiga ekki bara að vera praktísk – þau mega líka hjálpa börnum að líða vel, vera þau sjálf og tjá eigin persónuleika.
Flíkurnar eru hannaðar fyrir hversdagsævintýrin jafnt sem stærri augnablik, með pláss fyrir leik, hreyfingu og sköpunargleði. Hjá THE NEW fær karakter hvers barns að njóta sín.
Teddy jakkinn frá THE NEW sló í gegn í vor og er nú kominn aftur í nýjum og haustlegum lit.
Hlýr og mjúkur jakki sem hentar einstaklega vel þegar kólnar í veðri. Jakkinn er úr mjúku og notalegu teddy-efni sem heldur hita og veitir notalega, kósý tilfinningu.
Klassísk hönnun og tímalaus dökkblár litur gera jakkann auðveldan að para við hversdagsfatnað, hvort sem er fyrir skólann, útiveruna eða notalega daga heima.
Efni: 100% Polyester
Stærðirnar frá THE NEW eru rúmar þar sem þær dekka tvær stærðir.
Stærðir:
98/104 – 3-4 ára
110/116 – 5-6 ára
122/128 – 7-8 ára
134-140 – 9-10 ára
Fyrir minni stærðir en svipaðan stíl þá mælum við með að skoða The New Siblings
7.790 kr.
Þú hefur skráð þig í verðvöktun fyrir þessa vöru. við munum láta þig vita með tölvupósti ef verðið lækkar.
Verslaðu fyrir 5.000 kr eða meira og fáðu ókeypis afhendingu í póstbox eða á pósthús um allt land!
Allar pantanir eru sendar með Íslandspósti. Ókeypis afhending í póstbox og á pósthús um allt land ef verslað er fyrir 5.000 kr. eða meira. Pantanir sem berast fyrir kl. 13:00 skila sér í flestum tilfellum til viðskiptavina innan við sólarhring. Umfangsmeiri vörur eins og t.d. bílstólar geta tekið lengri tíma í afgreiðslu.
Það er hægt að velja að sækja pantanir í verslun. Bílstóla og kerrur er hægt að velja að sækja á lager okkar í Hafnarfirði.
Ekki hika við að hafa samband við okkur fyrir frekari upplýsingar.
