Heilgalli – Bangsi – Melange Offwhite

Vörunúmer: 0095475 Flokkur: Merkimiði:

Mjúkur og hlýr ullargalli frá Mikk-Line með extra krúttleg bangsaeyru. Gallinn er úr mulesing-fríu merínóullinni sem er öndun­ar­virk, klæjar ekki og heldur barninu í stöðugu hitastigi – svitafrítt og þægilegt. Hann hentar jafnt í daglegar göngur, bíltúra eða kósý blund og sem hlýtt millilag undir regn- eða snjógalla.

Frábær og hagnýt hönnun:

•Einlitur, einfaldur og hlutlaus hönnun, fáanlegur í mörgum litum

•YKK rennilás sem auðvelda að klæða barnið í gallann

•Hökuvörn sem gerir rennilásinn öruggan og þægilegan í notkun

•Hægt að snúa upp á ermar og skálmar til að hylja hendur og/eða fætur fyrir aukna hlýju

Tæknilegir eiginleikar:

•Hlýr og einangrandi en andar vel

•Náttúrulega vatnsfráhrindandi – ull hrindir frá sér raka

•Getur tekið í sig mikinn raka án þess að verða blautur í gegn

•Bakteríudrepandi og lyktar­minnkandi

•Burst­uð ull með TOTAL EASY CARE: endingargóð, lítið sem ekkert loð

•Sjálfhreinsandi – oft nóg að hengja hann út til að fríska upp á hann en annars mælum við alltaf með ullarprógrami eða stuttu prógrami á 30° við minnsta snúning

Mikk-Line hugsar um framtíð barnanna:

•Úr náttúrulegri og líf­brjótanlegri merínóull, mulesing-frí til að tryggja velferð dýranna

•Vott­aður samkvæmt OEKO-TEX® Standard 100

•Rennilásar án nikkels til að forðast ofnæmi

95% Merino ull 5% Polyester

13.690 kr.

Við höfum skráð þig á biðlista fyrir þessa vöru. Þú munt fá tölvupóst þegar varan er komin á lager.

Afskrá mig af biðlista

Þessi vara er ekki til á lager.

Skráðu þig á biðlista fyrir þessari vöru og við sendum þér tölvupóst um leið og varan er komin í sölu.

Ókeypis afhending ef þú verslar fyrir 18.000 kr, eða meira.

Mikk-Line er danskt vörumerki sem framleiðir hágæða útifatnað og fylgihluti fyrir börn. Vörurnar eru hannaðar til að standast norrænt veðurfar og tryggja börnum hlýju, þægindi og frelsi til leiks í öllum aðstæðum. Með endingargóð efni, vind- og vatnsheldum eiginleikum og umhverfisvænni framleiðslu sameinar Mikk-Line gæði, notagildi og tímalausa hönnun sem hentar jafnt í daglegan leik sem ævintýri úti í náttúrunni.

Allar pantanir eru sendar með Íslandspósti eða Dropp. Ókypis afhending í póstbox og á pósthús um allt land. Pantanir sem berast fyrir kl 13:00 eru í flestum tilfella að skila sér til viðskiptavina á innan við sólarhring. Umfangsmeiri vörur eins og t.d. bílstólar geta tekið lengri tíma í afgreiðslu.
Það er hægt að velja að sækja pantanir í verslun. Bílstóla og kerrur er hægt að velja að sækja á lager okkar í Hafnarfirði.
Ekki hika við að hafa samband við okkur fyrir frekari upplýsingar.