12.990 kr. Original price was: 12.990 kr..7.794 kr.Current price is: 7.794 kr..
Gjafapúðinn frá danska merkinu That´s Mine er ekkert nema dásamlegur og er notagildi hans mikið.
Hann hentar fyrst og fremst í brjósta- og pelagjafir. Hægt er að binda púðann utan um sig til að auka þægindin en rétt hæð og stelling ýtir undir góða brjóstagjöf og minnkar álagið á herðarnar.
Það eru tvö mjúk og falleg lauf á sitthvorum endanum á púðanum, þau eru hugsuð sem kúruklútar fyrir barnið á meðan það drekkur. Það er einnig hægt að binda endana saman og búa til lítinn stól fyrir barnið þegar það er að æfa sig í að sitja eða nota púðan sem stuðning þegar barnið er að æfa sig að liggja á maganum.
Hentar líka vel á meðgöngunni sem stuðningur við kúluna og/eða á milli fótanna í hvíld.
Hvort sem að þú notast við brjóstagjöf eða pelagjöf þá er gjafapúðinn frábær til þess að mynda falleg tengsl við barnið þitt.
Hægt að taka áklæðið af og þvo í þvottavél. Við mælum með stuttum þvotti á 30°. Við mælum ekki með að setja áklæðið í þurrkara þar sem bómull á það til að minnka örlítið í þvotti.
Púðan sjálfan má líka þvo í þvottavél en þarf þá vera í þvottaneti og mikilvægt að passa að hann sé alveg þurr áður en áklæðið er sett aftur á hann.
Áklæðið er 100% lífrænn bómull. Fyllingin er Antibacterial PVC fríir flamingo boltar. Með tímanum mun fyllingin þjappast saman og þá er hægt að skipta um fyllingu.
Stærð 77×72 cm
Aðeins eitt eintak eftir ‼️
