Gjafapúði – Baby Blue

Flokkur: Merkimiði:

Gjafapúðinn frá danska merkinu That´s Mine er ekkert nema dásamlegur og er notagildi hans mikið.

Hann hentar fyrst og fremst í brjósta- og pelagjafir. Hægt er að binda púðann utan um sig til að auka þægindin en rétt hæð og stelling ýtir undir góða brjóstagjöf og minnkar álagið á herðarnar.

Það eru tvö mjúk og falleg lauf á sitthvorum endanum á púðanum, þau eru hugsuð sem kúruklútar fyrir barnið á meðan það drekkur. Það er einnig hægt að binda endana saman og búa til lítinn stól fyrir barnið þegar það er að æfa sig í að sitja eða nota púðan sem stuðning þegar barnið er að æfa sig að liggja á maganum.
Hentar líka vel á meðgöngunni sem stuðningur við kúluna og/eða á milli fótanna í hvíld.

Hvort sem að þú notast við brjóstagjöf eða pelagjöf þá er gjafapúðinn frábær til þess að mynda falleg tengsl við barnið þitt.

Hægt að taka áklæðið af og þvo í þvottavél. Við mælum með stuttum þvotti á 30°. Við mælum ekki með að setja áklæðið í þurrkara þar sem bómull á það til að minnka örlítið í þvotti.
Púðann sjálfan má líka þvo í þvottavél en þarf þá vera í þvottaneti og mikilvægt að passa að hann sé alveg þurr áður en áklæðið er sett aftur á hann.

Áklæðið er 100% lífræn bómull. Fyllingin er Antibacterial PVC fríir flamingo boltar. Með tímanum mun fyllingin þjappast saman og þá er hægt að skipta um fyllingu.

Stærð 77×72 cm

12.990 kr.

Á lager

Frí skil og skipti í 14 dagaNánar
Skráning staðfest

Þú hefur skráð þig í verðvöktun fyrir þessa vöru. við munum láta þig vita með tölvupósti ef verðið lækkar.

Verðvöktun

Fáðu tölvuóst ef þessi vara fer á tilboð eða lækkar í verði.

Staðfesta vöktun

Verslaðu fyrir 5.000 kr eða meira og fáðu ókeypis afhendingu í póstbox eða á pósthús um allt land!

That’s Mine er danskt vörumerki sem framleiðir fallegar og hagnýtar barnavörur með innblæstri úr norrænni náttúru. Í vörulínunni má finna allt frá leikföngum og skrautmunum fyrir barnaherbergið til mjúkra teppa og fylgihluta sem gera daglegt líf þægilegra. That’s Mine leggur áherslu á sjálfbærni, gæði og tímalausa hönnun sem hentar jafnt börnum sem foreldrum – með hugsaðri blöndu af notagildi og fagurfræði.

Allar pantanir eru sendar með Íslandspósti. Ókeypis afhending í póstbox og á pósthús um allt land ef verslað er fyrir 5.000 kr. eða meira. Pantanir sem berast fyrir kl. 13:00 skila sér í flestum tilfellum til viðskiptavina innan við sólarhring. Umfangsmeiri vörur eins og t.d. bílstólar geta tekið lengri tíma í afgreiðslu.
Það er hægt að velja að sækja pantanir í verslun. Bílstóla og kerrur er hægt að velja að sækja á lager okkar í Hafnarfirði.
Sendu okkur línu í netspjallinu ef þig vantar frekari upplýsingar.